Einstaklega mjúk stuðningsmotta úr froðu.
Sérstaklega mjúk og þægileg stuðningsmotta fyrir starfsfólk sem er í stöðugri og mikilli kyrrstöðu með takmarkaða hreyfingu við vinnuna.
Mottan minnkar álag á fætur, bak, vöðva, liði og dregur þannig úr álagi og þreytu. Hentar bæði fyrir vinnustaði og heimili.
Aðstæður á vinnustöðum geta verið breytilegar og því er mikilvægt að velja rétta mottu miðað við þarfir og öryggisstaðla. Við val á öryggismottum skal taka tillit til ýmissa atriða eins og eldvarna, stöðuöryggis starfsfólks, hreinlætiskrafna, svo eitthvað sé nefnt.
Einnig ber að hafa í huga að mottan dragi ekki í sig óæskileg efni eins og t.d. olíur eða ætiefni, og mikilvægt er að það sé auðvelt að hreinsa hana.
Öryggismottur eru notaðar við margskonar framleiðslu í stór- jafnt sem smáiðnaði, í eldhúsum og mötuneytum, úti sem inni, og á sjó jafnt sem á landi.