Karfa

Það eru engar vörur í körfunni.

Skilmálar

Upplýsingar um seljanda

Seljandi er Ræstitækni ehf., kt. 460502-4460, Nýbýlavegi 32, 200 Kópavogur. VSK númer: 75092.

Almennt

Ræstitækni ehf., kt. 460502-4460 á og rekur netverslunina motta.is og áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

Afhending vöru

Kaupandi getur sótt vörur til Mottu á opnunartíma á Nýbýlaveg 32 í Kópavogi eða fengið vörur sendar með pósti. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Motta.is ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá motta.is til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Afgreiðslutími er almennt 2-3 dagar á vörum sem eru til á lager, en 8 vikur þegar um sérpantanir er að ræða.

Gallaðar vörur

Ef þú hefur fengið gallaða eða ranga vöru, sendu okkur hana til baka og við greiðum að sjálfsögðu sendingarkostnaðinn. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að leiðrétta slík mistök.

Greiðsluform

Motta.is býður upp á að greitt sé fyrir vörur með greiðslukorti. Kortafærslur fara fram á öruggri greiðslusíðu Valitor/Raphyd. Hafi kaupanda verið gefið upp rangt verð, t.d. vegna mistaka við innslátt eða bilunar í vinnslukerfi, þegar hann staðfesti kaup á vöru verður honum þegar í stað tilkynnt um verðbreytingu og gefinn kostur á leiðréttingu eða að hætta við kaupin.

Skilafrestur

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda.  Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.

• Útsöluvöru er hvorki hægt að skila né skipta

• Sérpöntuðum og sérframleiddum vörum er ekki hægt að skila

• Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd

Netverð

Öll verð eru í íslenskum krónum og innihalda 24% vsk. Vinsamlegast athugið að verð á netinu geta breyst án fyrirvara og öll verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða móttaka vöru á sér stað.

Vefurinn motta.is notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun viðskiptavina okkar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á motta.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur