Skilmálar
Skilmálar þessir gilda um sölu á vörum frá netverslun Motta.is. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur seljanda annarsvegar og kaupanda hinsvegar. Sé kaupandi neytandi í skilningi 3. mgr. 1. gr. laga nr. 48/2003 um neytendakaup og ákvæði þeirra laga eru kaupanda hagstæðari en ákvæði þessara skilmála, þá skulu þau gilda framar ósamrýmanlegum ákvæðum skilmálanna. Sé kaupandi lögaðili þá gilda ákvæði laga nr. 50/2000 um lausafjárkaup.
Kaupandi samþykkir skilmála þessa þegar gengið er frá kaupum í netverslun Motta.is og eru þeir grundvöllur viðskipta.
Upplýsingar um seljanda
Seljandi er Ræstitækni ehf., kt. 460502-4460, Nýbýlavegi 32, 200 Kópavogur. VSK númer: 75092.
Kaupandi er sá sem skráður er á reikning gefnum út af seljanda.
Verð og verðbreytingar
Öll verð á síðunni eru uppgefin í íslenskum krónum og innihalda 24% virðisaukaskatt. Motta.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
Greiðslur
Motta.is býður upp á að greitt sé fyrir vörur með greiðslukorti. Kortafærslur fara fram á öruggri greiðslusíðu hjá Straumi greiðslumiðlun. Hafi kaupanda verið gefið upp rangt verð, t.d. vegna mistaka við innslátt eða bilunar í vinnslukerfi, þegar hann staðfesti kaup á vöru verður honum þegar í stað tilkynnt um verðbreytingu og gefinn kostur á leiðréttingu eða að hætta við kaupin.
Afhending vöru
Kaupandi getur sótt vörur til Mottu á opnunartíma á Nýbýlaveg 32 í Kópavogi eða fengið vörur sendar með pósti. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Afgreiðslutími er almennt 2-3 dagar á vörum sem eru til á lager, en 8 vikur þegar um sérpantanir er að ræða.
Gallaðar vörur
Ef þú hefur fengið gallaða eða ranga vöru, sendu okkur hana til baka og við greiðum að sjálfsögðu sendingarkostnaðinn. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að leiðrétta slík mistök.
Skilaréttur neytenda
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna og að henni sé skilað í góðu lagi í upprunalegum umbúðum. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda.
Við skil á vöru er miðað við verð samkvæmt útgefnum reikningi og er varan endurgreidd að fullu. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Sendingarkostnaður við að skila vöru er greiddur af kaupanda. Endurgreiðsla er framkvæmd inn á kreditkort innan 14 virkra daga. Sérpöntuðum og sérframleiddum vörum er ekki hægt að skila og flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Tilkynna skal um vöruskil með því að senda tölvupóst á netfangið motta@motta.is eða með því að skila inn stöðluðu uppsagnareyðublaði á neytendasamningi sem finna má í viðauka 2 í reglugerð nr. 435/2016 um upplýsingar um nýtingu réttar til að falla frá samningi.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa
Úrskurðaraðili vegna ágreinings á sviði neytendamála er kærunefnd vöru- og þjónustukaupa.
Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa
Borgartún 21, 105 Reykjavík
kvth.is
Lög og varnarþing
Skilmálar þessi eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna þeirra, skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.