Vinnumottur
Fólk sem stendur langtímum saman við vinnu sína þekkir mikilvægi þess að hafa rétt undirlag. Langar stöður orsaka oft verki í fótum eða baki og það á við um starfsmenn jafnt sem þá sem heimsækja vinnustaði og þurfa að bíða standandi.

Vinnumottur eru hannaðar til að vera þægilegar fyrir starfsfólk og minnka þannig líkur á meiðslum og fjarvistum. Vinnumottur eru ýmist úr vönduðu gúmmíi eða með úr nylonefni með gúmmí undirlagi. Þær fást með mismunandi áferðum og í mismunandi þykktum í úrvali sem hentar ólíkum aðstæðum á vinnustöðum.